Garðabær í 1. sæti varðandi ánægju íbúa með skólamál
Í niðurstöðum kemur fram mikil ánægja með þjónustuna í Garðabæ og sér í lagi varðandi skólastarfið, en Garðabær er í 1. sæti af 20 stærstu sveitarfélögum landsins þegar spurt er um ánægju íbúa með grunnskóla bæjarins.
Slíkri niðurstöðu er rétt að fagna og þakka þeim sem hlut eiga að máli. Á sama tíma er nauðsynlegt að vera sífellt ,,á tánum“, hlúa að því sem gott er, takast á við áskoranir og stefna sífellt til betri verka. Til hamingju með þessa niðurstöðu kennarar, skólastjórnendur, allir starfsmenn skóla í Garðabæ og starfsmenn skólaskrifstofu!
Metnaður skólanna og sterk fagmennska
Það er alveg ljóst að niðurstaða sem þessi endurspeglar sterka fagmennsku og metnaðarfullt starf skólanna þar sem kennarar, stjórnendur og aðrir starfsmenn setja markið hátt og ná vel til nemenda sinna. Allir starfsmenn skóla eru mikilvægir hvaða hlutverki sem þeir gegna. Starfsmaður skóla sem horfir í augu barnsins, ávarpar það hlýlega með nafni og sýnir því einlægan áhuga getur skipt sköpum í lífi þess. Athygli, áhugi og umhyggja er stór gjöf í hraða nútímans.
Hátt þjónustustig
Garðabær leggur áherslu á hátt þjónustustig í skólakerfinu. Frjálst val er um grunnskóla þannig að börn eru ekki bundin af því að ganga í skólann sem er í þeirra hverfi, tómstundaheimili eru opin í skólafríum og boðið eru upp á frístundabíl. Tenging milli leik- og grunnskóla hefur verið aukin meðal annars með raunhæfu vali fyrir 5 ára börn um að dvelja á leikskóladeild í húsnæði grunnskóla auk þess sem móttaka nemenda í fyrsta bekk grunnskóla hefur verið efld þannig að nemendur koma viku fyrr en aðrir nemendu í skólann að hausti og fá þannig góða aðlögun að nýju skólastigi.
Þróunarsjóður: Fjölþætt og öflug þróunarverkefni
Þróunarsjóðir leik- og grunnskóla hafa styrkt fjölmörg öflug þróunarverkefni sem hvetja til framþróunar og efla skólastarfið. Þróunarsjóðirnir voru stofnaðir árið 2015 og hafa úthlutað 33 miljónum árlega til leik- og grunnskóla eða rétt tæpum 165 milljónum síðustu fimm ár.
Jákvæður skólabragur
Auk þessa er í skólastefnu bæjarins lögð áhersla á samstarf skólastiga og samfellu í námi barna og ungmenna, einstaklingsmiðað námi og námshraða og virkt samstarf heimila og skóla. Skólar hafa sjálfstæði til að marka sér sérstöðu en almennt er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag, gott starfsumhverfi og virka símenntun starfsfólks.
Sigríður Hulda Jónsdóttir,
formaður skólanefndar grunnskóla og bæjarfulltrúi